Stjórn Vátryggingafélags Íslands hf. hefur boðað til hluthafafundar sem haldinn verður í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3, 108 Reykjavík, miðvikudaginn 17. janúar kl. 16:00.
Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja hluthafafundinn eru beðnir um að skrá sig á vefsíðunni:
https://www.lumiconnect.com/meeting/visjanuary2024
Frestur til að skrá sig er til kl. 16:00 þann 15. janúar, eða tveimur dögum fyrir hluthafafundinn. Með innskráningu þarf að fylgja mynd af skilríkjum og umboð, ef við á.
Endanleg dagskrá fundarins er í viðhengi. Öll gögn hluthafafundar, s.s. ályktunartillaga stjórnar og greinagerð með henni og leiðbeiningar um skráningu og rafræna atkvæðagreiðslu má finna á vefsíðu félagsins.
Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri, í s. 660 5260 eða með tölvupósti fjarfestatengsl@vis.is
Viðhengi