Í tengslum við útboð Landsbankans á sértryggðum skuldabréfum í gær fór fram skiptiútboð þar sem fjárfestar áttu kost á því að greiða fyrir skuldabréf í útboðinu með afhendingu skuldabréfa í flokki LBANK CBI 24 á fyrirframákveðna verðinu 99,860.
Niðurstaða skiptiútboðs leiðir til þess að Landsbankinn kaupir 1.780 m.kr. að nafnverði í flokki LBANK CBI 24.
Uppgjör endurkaupanna fer fram þann 26. september 2024.