Félagsbústaðir hf. - Fjárhagsáætlun 2025


Stjórn Félagsbústaða hf. samþykkti á fundi sínum 26. september 2024 fjárhagsáætlun félagsins fyrir árið 2025 og langtímaáætlun fyrir árin 2026 til 2029. Fjárhagsáætlunin byggir á útgönguspá fyrir árið 2024.

Helstu atriði í fjárhagsáætlun fyrir árið 2025 eru:

  • Áætlað er að rekstrarniðurstaða ársins 2024 verði jákvæð um 7.185 m.kr.
  • Áætlað er að rekstrartekjur nemi 7.660 m.kr. eða áætluð aukning um 8,5% frá fyrra ári.
  • Áætlað er að rekstrargjöld nemi 4.369 m.kr. eða áætluð aukning um 9,8% frá fyrra ári.
  • Áætlað er að matsbreytingar fjárfestingareigna nemi 7.696 m.kr.
  • Áætlað er að greiðslubyrði lána nemi 3.225 m.kr.
  • Áætlað er að handbært fé í lok árs nemi 104 m.kr.
  • Rekstur félagsins er sjálfbær á tímabilinu og handbært fé frá rekstri nægir til að greiða afborganir af núverandi og nýjum skuldum félagsins.
  • Áætlað er að eiginfjárhlutfall verði 54,0% í lok árs.
  • Áætlað er að íbúðum félagsins fjölgi um 80.
  • Áætlað er að fjárfestingakostnaður nemi 5.951 m.kr.
  • Áætlað er að 30,8% fjárfestingakostnaðar verði aflað með stofnframlögum og 69,2% með lánsfé.
  • Keyptar verða íbúðir í nýbyggingum í kjölfar kaupréttarsamninga, á almennum fasteignamarkaði og byggðir íbúðakjarnar.

Meðfylgjandi er áætlun ársins 2025 og langtímaáætlun 2026 til 2029.

Nánari upplýsingar veitir:

Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri, sigrun@felagsbustadir.is sími 520-1500

Viðhengi



Attachments

Fjárhagsáætlun Félagsbústaða 2025-2029