Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 41 keypti Heimar hf. („Heimar“) 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 92.000.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
07.10.2024 10:00 1.000.000 30,7 30.700.000
08.10.2024 10:18 1.000.000 30,8 30.800.000
10.10.2024 10:13 1.000.000 30,5 30.500.000
Samtals   3.000.000   92.000.000

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 16. september 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins félagsins 2025.

Heimar átti 13.000.000 fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 16.000.000 hluti, eða um 0,88% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 490.500.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is