Síminn hf. – Flöggun eigin hlutir


Í dag 28. október 2024 keypti Síminn hf. 1.000.000 eigin hluti í tengslum við endurkaupaáætlun Símans hf. sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 28. ágúst 2024. Með viðskiptunum fór hlutfall eigin bréfa Símans hf. yfir 5% af heildarfjölda hluta.

Síminn hf. átti 131.778.744 eigin hluti fyrir viðskiptin í dag en á að þeim loknum 132.778.744 eða sem nemur 5,011% af útgefnum hlutum í félaginu.

Tilkynning þessi er gerð með vísan til 29. gr. (Flöggunarskylda vegna eigin hluta) laga nr. 20/2021 upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is.