Fjárhagsspá Orkuveitunnar | Forysta í orkuskiptum og loftslagsmálum


Fjárhagsspá Orkuveitunnar fyrir árin 2025 til og með 2029, sem var samþykkt af stjórn þann 28. október, felur í sér metnað fyrirtækisins til að vera aflvaki sjálfbærrar framtíðar, sem er yfirskrift heildarstefnu fyrirtækisins. Gert er ráð fyrir talsverðum vexti á tímabilinu í þessari samandregnu spá fyrir Veitur, Orku náttúrunnar, Ljósleiðarann og Carbfix, auk móðurfélagsins. Spá hvers félags innan samstæðunnar hafði áður verið samþykkt í viðkomandi stjórn og fer spáin til frekari umfjöllunar sem hluti fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar. 

Stefna birtist í fjárfestingum 
Í fjárhagsspánni birtast stefnuáherslur Orkuveitunnar meðal annars í fjárfestingum til að tryggja öflun raforku og varma til framtíðar á sama tíma og öflugum veitukerfum er viðhaldið, þau efld og stækkuð. Nýtni núverandi virkjana verður aukin og stutt við frekari þróun hringrásarhagkerfis tengdu jarðhitanýtingunni um leið og stórt skref verður stigið í aukinni kolefnisbindingu Carbfix. 

Í spánni er meðal annars gert ráð fyrir að; 

  • Árlegar tekjur vaxi úr 66,4 ma.kr. í útkomuspá 2024 í 88,1 ma.kr. árið 2029, eða um 33%. 
  • Árlegur rekstrarkostnaður vaxi úr 29,2 ma.kr. í 34,4 ma.kr. eða um 18%. 
  • Handbært fé frá rekstri vaxi úr 30,4 ma.kr. samkvæmt útkomuspá 2024 í 39,8 ma.kr. 2029, eða um 31%. 
  • Eigið fé Orkuveitunnar vaxi úr 260,0 ma.kr. í árslok 2024 í 333,7 ma.kr. í árslok 2029 eða um 28%. 

Spennandi tímar segir Sævar Freyr 

„Það eru verulega spennandi tímar framundan hjá okkur Orkuveitufólki,“ segir Sævar Freyr Þráinsson forstjóri Orkuveitunnar. „Við ætlum okkur að taka þátt í grænum vexti samfélagsins og leiða hann á mörgum sviðum. Við munum efla og auka okkar orkuvinnslu og leitum samstarfs til að hún nýtist til að gera starfsemi annarra líka grænni,“ bætir Sævar Freyr við. 

Í fjárhagsspánni er  gert ráð fyrir að heildarfjárfestingar á þessu fimm ára tímabili, 2025-2029, nemi 227 milljörðum króna. Framlegð rekstursins fjármagnar þetta að mestu leyti en gert er ráð fyrir nettó lántöku sem nemur tæpum 37 milljörðum. Þá er gert ráð fyrir að stærsta verkefni Carbfix, Coda Terminal kolefnisförgunarstöðin, verði fjármagnað að hluta með utanaðkomandi eiginfjármögnun, enda sé það forsenda þess að ráðist verði í verkefnið. 

Óviss tímasetning einstakra verkefna 

Í greinargerð með fjárhagsspánni kemur fram að tímasetning hluta fjárfestinga Orkuveitunnar ráðist af ákvörðunum annarra, til dæmis ríkis og sveitarfélaga. Hraði uppbyggingar íbúða- og atvinnusvæða er að nokkru leyti í höndum sveitarfélaga og byggingaraðila og leyfisveitingaferli hafa afgerandi áhrif á hvenær af einstökum fjárfestingum í orkuöflun og kolefnisförgun getur orðið.  

„Um leið og við greiðum leið þeirra grænu umskipta sem eru nauðsynleg munum við gæta að því að standa vörð um grunnþjónustuna sem okkur er trúað fyrir,“ segir Sævar  og vísar þá til þeirrar fjölbreyttu veituþjónustu, sem um þrír af hverjum íbúum landsins njóta. Þar eru rafveitan og hitaveitan grunnþættir fyrstu orkuskiptanna í landinu. „Grunnþjónustan verður áfram traust og á sanngjörnu verði,“ segir hann, „en okkur er heldur engin launung á því að við viljum fá betra verð fyrir rafmagn til stórnotenda. Núverandi samningar, sem komnir eru til ára sinna, innihalda líka flutning á raforku, sem við viljum að kaupendur borgi milliðalaust.“

Tengiliður: 

Snorri Hafsteinn Þorkelsson 
Framkvæmdastjóri fjármála 
snorri.hafsteinn.thorkelsson@orkuveitan.is 

Viðhengi



Attachments

Fjárhagsspá Orkuveitunnar 2025-2029