SKEL fjárfestingafélag hf.: Styrkás hf. undirritar samkomulag um helstu skilmála kaupsamnings vegna kaupa á Hringrás ehf.


Styrkás hf., félag í 63,4% eigu SKEL fjárfestingafélags hf., undirritaði í dag samkomulag um helstu skilmála kaupsamnings vegna kaupa á 100% hlutafjár í Hringrás ehf. Seljendur í viðskiptunum eru TF II slhf., framtakssjóður í stýringu Landsbréfa, sem fer með 60% eignarhlut í Hringrás og Hópsnes ehf. 40%. Fyrirhuguð kaup eru liður í áætlunum Styrkás um að umhverfisþjónusta verði eitt kjarnasviða félagsins í þjónustu við atvinnulífið á Íslandi.

Í samkomulaginu er gert ráð fyrir því að heildarvirði (e. enterprise value) Hringrás sé 6.300 m.kr. en heildarvirði geti orðið allt að 6.500 m.kr. ef árangursviðmiðum er náð. Kaupverð eigin fjár (e. equity value) mun ráðast af stöðu nettó vaxtaberandi skulda og áætlaðra eftirstöðva fjárfestinga á viðmiðunardegi. Allt kaupverðið verður greitt með nýjum hlutum í Styrkás. Verð nýrra útgefinna hluta í Styrkási í viðskiptunum miðast við að eiginfjárvirði Styrkás sé 20.470.000.000 kr. Áætlað er að seljendur eignist á bilinu 9,7-10,7% hlut í Styrkási eftir kaupin.

Áætlaður hagnaður Hringrásar fyrir afskriftir, skatta og fjármagnsliði er 244 m.kr. árið 2024. Bókfært virði fastafjármuna Hringrásar að loknum fjárfestingum nemur 6.200-6.400 m.kr. og eigið fé félagsins er 2.300 m.kr. Hagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) Hringrásar á tímabilinu 2021-2023 var að meðaltali tæplega 500 milljónir króna. Þegar framkvæmdum á lóð og flutningi á starfsemi Hringrásar er lokið er lagt til grundvallar við kaupin að hagnaður félagsins fyrir afskriftir (EBITDA) verði yfir 1 milljarður króna.

Samkomulagið er meðal annars gert með fyrirvara um gerð áreiðanleikakönnunar, gerð kaupsamnings, endanlegt samþykki stjórnar- og hluthafafundar og samþykki Samkeppniseftirlits. 

Að teknu tilliti til viðskiptaverðs er áætlað virði eignarhlutar SKEL í Styrkás 12.968 m.kr. Bókfært verð hlutafjár SKEL í Styrkási í hálfsársuppgjöri SKEL var 9.684 m.kr.

Að mati SKEL skapa rekstur Hringrásar og eignir félagsins fjölmörg tækifæri til lengri tíma litið á sviði endurvinnslu og umhverfismála sem verða sífellt veigameiri í starfi atvinnufyrirtækja. Kaup Styrkáss á Hringrás færa félagið einnig nær settu marki um vöxt í aðdraganda skráningar félagsins í kauphöll fyrir lok árs 2027.

Um Styrkás

Styrkás er þjónustufyrirtæki við íslenskt atvinnulíf. Félagið hefur markað sér stefnu um  bæði innri og ytri vöxt á fimm kjarnasviðum, þ.e. á sviðum orku og efnavöru, tækjum og búnaði, umhverfi, iðnaði og eignaumsýslu. Innan samstæðu félagsins í dag eru fyrirtækin Skeljungur, Klettur og Stólpi Gámar sem eru leiðandi félög á sínum sviðum. Hagnaður samstæðufélaga Styrkáss fyrir afskriftir (EBITDA) nam samtals 2,6 milljörðum króna árið 2023 og hagnaður var 1,2 milljarðar króna eftir skatta. Markmið hluthafa er að skrá alla hluti í félaginu á skipulegan markað í Kauphöll Íslands fyrir árslok 2027. Forstjóri Styrkás er Ásmundur Tryggvason. Finna má nánari upplýsingar á vefsíðu félagsins www.styrkas.is

Ráðgjafar Styrkáss í ferlinu eru Akrar Consult og BBA // Fjeldco.

Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason forstjóri, fjarfestar@skel.is