Í viku 49 keypti Heimar hf. („Heimar“) 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 105.600.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
02.12.2024 | 09:32 | 1.000.000 | 35 | 35.000.000 |
03.12.2024 | 14:23 | 1.000.000 | 35,4 | 35.400.000 |
05.12.2024 | 10:42 | 1.000.000 | 35,2 | 35.200.000 |
Samtals | 3.000.000 | 105.600.000 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 20. nóvember 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2025.
Heimar átti 38.445.833 fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 41.445.833 hluti, eða um 2,29% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 1.349.199.989 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is