Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – lok endurkaupa


Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um þann 20. nóvember sl. er nú lokið.

Í viku 51 keypti Heimar hf. („Heimar“) 1.200.000 eigin hluti að kaupverði 44.700.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
16.12.202411:381.000.00037,137.100.000
19.12.202412:08200.000387.600.000
Samtals 1.200.000 44.700.000

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 20. nóvember 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2025. Endurkaup samkvæmt endurkaupaáætlun er nú lokið.

Heimar áttu 44.445.833 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 45.645.833 hluti, eða um 2,52% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 1.499.999.989 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is