Tilnefningarnefnd SKEL fjárfestingafélags hf. auglýsir eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnar félagsins vegna aðalfundar SKEL fjárfestingafélags sem haldinn verður 6. mars 2025.
Hlutverk tilnefningarnefndar er að hafa ráðgefandi hlutverk við val á stjórnarmönnum og leggur nefndin tillögur þess efnis fyrir aðalfund félagsins. Markmið með skipun tilnefningarnefndar er að koma á gagnsæju og skýru fyrirkomulagi tilnefninga stjórnarmanna á aðalfundi félagsins, sem m.a. skapar hluthöfum þess forsendur fyrir upplýstri ákvarðanatöku. Hlutverk nefndarinnar er að tryggja að stjórn félagsins hafi yfir að búa breidd í hæfni, reynslu og þekkingu. Jafnframt að færni stjórnarmanna sé af þeim toga að hún nýtist félaginu og dótturfélögum þess.
Allir stjórnarmenn þurfa að fullnægja þeim skilyrðum sem fram koma í samþykktum félagsins og lögum um hlutafélög nr. 2/1995, sbr. 66. gr. laganna. Starfsreglur tilnefningarnefndar, samþykktir félagsins og önnur gögn eru aðgengileg á heimasíðu SKEL.
Óskað er eftir að tilnefningum eða framboðum sé skilað til tilnefningarnefndar, sjá meðfylgjandi eyðublað, eigi síðar en 31. janúar 2025 með tölvupósti á netfangið tilnefningarnefnd@skel.is. Nefndin mun bjóða frambjóðendum að funda með sér á tímabilinu 4.-5. febrúar 2025.
Tillaga nefndarinnar að stjórn verður send út ásamt öðrum tillögum til aðalfundar þann 14. febrúar 2025. Rétt er þó að geta þess að nefndin áskilur sér rétt til þess að endurskoða tillögu sína þar til tíu dögum fyrir aðalfund. Lokafrestur til framboðs er fimm dögum fyrir aðalfund en nefndin mun ekki geta lagt mat á framboð sem berast eftir að tvær vikur eru til fundarins, sem haldinn verður þann 6. mars 2025. Upplýsingar um alla frambjóðendur verða birtar á heimasíðu félagsins eigi síðar en tveimur sólarhringum fyrir aðalfund.
Mikilvægar dagsetningar:
31. janúar Tilnefningarnefnd óskar eftir að tilnefningar/framboð séu send fyrir lok þessa dags
4.-5. febrúar Viðtöl tilnefningarnefndar við frambjóðendur
14. febrúar Skýrsla og tillaga tilnefningarnefndar send út ásamt fundarboði til aðalfundar
21. febrúar Tilnefningarnefnd leggur ekki mat á framboð sem berast eftir kl. 16:00 þennan dag
25. febrúar Frestur tilnefningarnefndar til að endurskoða tillögu sínar og senda út rennur út
1. mars Framboðsfrestur rennur út kl. 16:00
4. mars Eigi síðar en þennan dag skal birta endanleg framboð
6. mars Aðalfundur SKEL fjárfestingafélags 2025
Viðhengi