Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða viðbótarútgáfu úr skuldabréfaútboði


Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkunum LSS 39 0303 og LSS151155 þann 12. febrúar 2025. Uppgjör viðskipta fer fram 17. febrúar 2025.

Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það magn sem þeir hafa keypt í útboðinu. Jafnframt áskilur Lánasjóðurinn sér rétt til að selja meira en 10% ef eftirspurn er til staðar.

Alls bárust tilboð í LSS 39 0303 að nafnvirði ISK 5.690.000.000 á bilinu 3,74% - 3,91%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.100.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,75%. Að þessu sinni óskuðu aðalmiðlarar eftir að nýta sér kauprétt fyrir viðbót í LSS 39 0303 fyrir ISK 90.000.000 að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 3,75%. Samþykkt viðbót nemur ISK 90.000.000 af nafnvirði. Útistandandi fyrir voru ISK 33.212.600.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 500.000.000). Heildarmagn seldra bréfa í útboðinu að meðtaldri viðbótarútgáfunni er ISK 1.190.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 34.402.600.000. 

Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 700.000.000 á bilinu 3,36% - 3,40%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 300.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,36%. Að þessu sinni óskuðu aðalmiðlarar eftir að nýta sér kauprétt fyrir viðbót í LSS151155 fyrir ISK 30.000.000 að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 3,36%. Samþykkt viðbót nemur ISK 30.000.000 af nafnvirði. Útistandandi fyrir voru ISK 34.955.000.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 440.000.000). Heildarmagn seldra bréfa í útboðinu að meðtaldri viðbótarútgáfunni er ISK 330.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 35.285.000.000.


Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, ottar@lanasjodur.is / s. 515 4949


Recommended Reading