Kvika banki hf.: Fundarboð á aðalfund 26. mars 2025


Aðalfundur Kviku banka hf., kt. 540502-2930 („Kvika“), verður haldinn miðvikudaginn 26. mars 2025, kl. 16:00, á Nauthóli við Nauthólsvík í Reykjavík.

Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi mál:

1) Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár.

2) Ársreikningur félagsins fyrir árið 2024 ásamt ákvörðun um meðferð hagnaðar félagsins á reikningsárinu og meðferð hluta af söluverði TM.

              Stjórn Kviku leggur til að greiddur verði út arður til hluthafa bankans sem nemi kr. 5 á hlut.

3) Tillaga um endurnýjun á heimild félagsins til að kaupa eigin hlutabréf.

4) Tillaga um lækkun hlutafjár með ógildingu eigin hluta og samsvarandi breytingu á samþykktum félagsins.

5) Tillaga að breytingu á samþykktum félagsins.

6) Kosning stjórnar og varastjórnar félagsins.

7) Tilnefningarnefnd.

  1. Tillaga um að hluthafar staðfesti framvegis skipan/kosningu allra þriggja nefndarmanna og samsvarandi breytingu á samþykktum félagsins.
  2. Tillaga um breytingar á starfsreglum tilnefningarnefndar.
  3. Tillaga um þóknun nefndarmanna í tilnefningarnefnd.
  4. Tillaga um staðfestingu á skipan þriggja nefndarmanna í tilnefningarnefnd.

8) Tillaga um starfskjarastefnu félagsins.

9) Kosning endurskoðenda félagsins.

10) Tilnefning aðila í endurskoðunarnefnd.

11) Ákvörðun þóknunar til stjórnarmanna og nefndarmanna í undirnefndum stjórnar félagsins.

12) Önnur mál.

Fundarstörf fara fram á íslensku. Fundargögn eru aðgengileg á heimasíðu félagsins á íslensku og ensku utan þess að ársreikningur félagsins er eingöngu aðgengilegur á ensku. Dagskrá, endanlegar tillögur, starfskjarastefna, ársreikningur félagsins og önnur fundargögn munu liggja frammi á skrifstofu félagsins að Katrínartúni 2, Reykjavík, hluthöfum til sýnis í 21 dag fyrir aðalfund. Umrædd gögn, ásamt upplýsingum um frambjóðendur til stjórnar, verða einnig birt á heimasíðu félagsins, www.kvika.is/agm. Þá er skýrsla tilnefningarnefndar meðfylgjandi fundarboði þessu, auk þess sem hún er aðgengileg á heimasíðu félagsins.

Að öðru leyti vísast til meðfylgjandi fundarboðs.

Viðhengi



Attachments

Fundarboð á aðalfund Kviku banka hf. 2025 Skýrsla tilnefningarnefndar Kviku banka hf. 2025

Recommended Reading