Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 13 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 12.500.000 eigin hluti að kaupverði 216.150.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð
26.3.202510:08:05   1.000.000 21,121.100.000    
26.3.202513:33:09   1.000.000 21,321.300.000    
26.3.202515:03:00   1.000.000 21,321.300.000    
27.3.202509:46:52   1.000.000 16,216.200.000    
27.3.202510:28:02   1.000.000 16,2516.250.000    
27.3.202514:16:20   1.000.000 16,1516.150.000    
27.3.202515:11:28   1.000.000 16,1516.150.000    
28.3.202509:32:56   1.000.000 15,9515.950.000    
28.3.202511:15:00   2.000.000 15,9531.900.000    
28.3.202513:13:15   1.000.000 16,016.000.000    
28.3.202514:23:00   1.000.000 15,9515.950.000    
28.3.202515:19:09      500.000 15,87.900.000    
Samtals 12.500.000 216.150.000

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 27. febrúar sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. mars 2024.

Kvika hefur nú keypt samtals 42.647.962 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,903% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 817.356.231 kr. Eftir kaupin eru eigin hlutir Kviku samtals 104.541.303 hlutir eða sem nemur 2,214% af útgefnum hlutum í félaginu.

Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 2.500.000.000 að kaupvirði.

Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 27. febrúar 2025 til aðalfundar Kviku á árinu 2026 nema hámarks kaupvirði verði náð fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög. þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014. sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016. sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is


Recommended Reading