Kvika banki hf.: Útboð á skuldabréfum þann 25. júní


Kvika mun halda lokað útboð á nýjum flokki skuldabréfa, KVIKA 28 0703, miðvikudaginn 25. júní 2025. Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN útgáfuramma bankans og skráð í kauphöll Nasdaq Iceland. Skuldabréfin eru til þriggja ára með fljótandi vöxtum og einni höfuðstólsgreiðslu á gjalddaga þann 3. júlí 2028. Bréfin bera fljótandi REIBOR 3 mánaða vexti að viðbættu álagi sem greiddir eru ársfjórðungslega.

Útboðið verður með hollensku fyrirkomulagi, þ.e. öll skuldabréfin verða seld á hæsta álagi sem tekið verður ofan á 3 mánaða REIBOR vexti.

Áætlaður uppgjörsdagur er fimmtudagurinn 3. júlí 2025.

Markaðsviðskipti Kviku hafa umsjón með útboðinu og er tekið á móti tilboðum á netfangið utbod@kvika.is til klukkan 16:00 miðvikudaginn 25. júní 2025.


Recommended Reading