Rekstraruppgjör A-hluta Reykjavíkurborgar janúar til mars 2025


Fjármála- og áhættustýringarsvið Reykjavíkurborgar leggur nú fram óendurskoðað rekstraruppgjör A-hluta fyrir tímabilið janúar til mars 2025. Uppgjörið er gert í samræmi við sveitarstjórnarlög, lög um ársreikninga og reglugerð um bókhald, fjármál og ársreikninga sveitarfélaga.

Rekstrarniðurstaða A-hluta fyrir tímabilið janúar til mars 2025 var neikvæð um 5.435 m.kr. sem var 2.143 m.kr. lakari niðurstaða en fyrir ári síðan en 985 m.kr. lakari niðurstaða en áætlað var. Jákvæð frávik voru í staðgreiddu útsvari sem var 1.929 m.kr. yfir áætlun en neikvæð frávik í gjaldfærslu lífeyrisskuldbindingar sem var 2.315 m.kr. yfir áætlun. Áhrif kjarasamninga sem staðfestir voru á fyrsta ársfjórðungi ársins á lífeyrisskuldbindinguna voru metin 2.500 m.kr. umfram áætlun. Áhrifin hafa verið gjaldfærð á tímabilið til samræmis. Rekstur sviða og stofnana var að mestu í jafnvægi á tímabilinu.

Rekstrartekjur hækkuðu milli ára um 3.179 m.kr. Skatttekjur ásamt tekjum frá Jöfnunarsjóði jukust um 3.508 m.kr., þar af jókst staðgreiðsla útsvars um 2.496 m.kr. Sala byggingarréttar var 348 m.kr. lægri í ár saman borið við sama tímabil árið 2024. Launakostnaður hækkaði um 2.000 m.kr. á milli ára en nýir kjarasamningar hafa hér nokkur áhrif. Gjaldfærsla lífeyrisskuldbindinga var 2.378 hærri en á sama tímabili 2024. Annar rekstrarkostnaður jókst um 982 m.kr. á milli ára og afskriftir um 156 m.kr. Nettó fjármagnsgjöld voru lægri í ár um 194 m.kr.   Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) var neikvæð um 592 m.kr. sem var um 2.181 m.kr. lakari niðurstaða en á sama tímabili 2024. Gætir hér áhrifa af gjaldfærslu lífeyrisskuldbindingar umfram áætlanir. EBITDA var um 1.197 m.kr. lægri en gert var ráð fyrir í áætlun. Veltufé frá rekstri var jákvætt um 684 m.kr. eða 1.376 m.kr. hærra en áætlað var. Veltufé frá rekstri var 323 m.kr. betra en á sama tíma árið 2024.

Rekstraruppgjörið var lagt fram í borgarráði í dag í samræmi við tímaáætlun um framlagningu á mánaðar- og árshlutauppgjörum ársins 2025.

Reykjavík, 26. júní 2025

Nánari upplýsingar veitir

Halldóra Káradóttir, sviðstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs Reykjavíkurborgar

halldora.karadottir@reykjavik.is

Viðhengi



Attachments

Rekstraruppgjör Reykjavíkurborgar A-hluti janúar-mars 2025
GlobeNewswire

Recommended Reading