Alvotech tilkynnir breytingu í framkvæmdastjórn

Iceland, Germany, India, U.S.


REYKJAVÍK (30. apríl 2026) — Alvotech (NASDAQ: ALVO, ALVO SDB) tilkynnti í dag að Tanya Zharov, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs, hefði óskað eftir að láta af störfum eftir sex ára feril hjá félaginu.

„Ég vil þakka Tanyu innilega fyrir framlag hennar til Alvotech undanfarin sex ár, þar sem hún hefur leitt skráningu félagsins á nokkrum mörkuðum og átt mikilvægan þátt í að laða að fjölda erlenda sérfræðinga til starfa á Íslandi. Í sameiningu höfum við sett saman frábært leiðtogateymi sem er tilbúið til að leiða félagið á næstu árum,“ sagði Róbert Wessman, stjórnarformaður Alvotech.

„Þessi sex ár hafa verið ævintýri og ég er afar þakklát fyrir að hafa fengið að taka þátt í að byggja upp þetta framúrskarandi fyrirtæki, meðal annars með skráningu á markað í þremur löndum. Nú er rétti tíminn til að breyta til. Það er mér sönn ánægja að sjá Lisu Graver taka við stöðu forstjóra og bætast þannig í hóp þeirra frábæru samstarfsfélaga í yfirstjórn Alvotech sem hafa flust til Íslands. Þótt ég hafi ákveðið að láta af störfum, er ég ekki farin strax, hlakka til að taka þátt í að afhenda öðrum keflið og styðja félagið á næstu mánuðum. Samstarf mitt við Róbert og tenging við Alvotech heldur svo áfram, þar sem ég mun taka að mér setu í stjórnum fyrir eignarhaldsfélög hans, Aztiq og Flóka,“ sagði Tanya Zharov. 

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið
Benedikt Stefánsson, forstöðumaður
alvotech.ir@alvotech.com

Um Alvotech
Alvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þróunar- og framleiðsluþættir í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu og krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.

Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu Alvotech, á fjárfestasíðu okkar og á almennri vefsíðu félagsins á ensku. Fylgjast má með starfsemi Alvotech á LinkedIn, Facebook, Instagram og YouTube.

 


GlobeNewswire

Recommended Reading