Eimskipafélag Íslands hf., fyrir hönd P/f Faroe Ship, og Sjómannafélag Íslands (SÍ) hafa undirritað samkomulag um að aflýsa verkfalli háseta og bátsmanna á skipum félagsins, Brúarfossi, Dettifossi og Selfossi.
Undirbúningur fyrir brottfarir skipa hefst þegar í stað og gert er ráð fyrir öll skip félagsins verði komin á áætlun í næstu viku.
Eimskip hefur mikla trú á sjómannastéttinni og hefur langvarandi reynslu af starfi þeirra, hæfni, dugnaði og áræðni. Það er félaginu mikilvægt að halda því rótgróna sambandi áfram, vinna að framgangi stéttarinnar og lyfta henni upp.
Nánari upplýsingar veitir Harpa Hödd Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs, sími: 825 7379, netfang harpa@eimskip.com.