Tilkynning frá Eimskip


Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í dag frá dómi seinna skaðabótamáli Alcoa Fjarðaáls sf. á hendur Eimskipafélagi Íslands hf., Eimskip Ísland ehf., Samskipum hf., og Samskip Holding B.V.

Alcoa ákvað í maí 2025 að fella niður fyrra skaðabótamál gegn Eimskip og greiða félaginu málskostnað. Alcoa höfðaði síðan mál að nýju í desember 2025, þó þannig að þá var engin fjárkrafa gerð heldur stefnt til viðurkenningar á bótaskyldu án fjárhæðar. Því máli hefur nú verið vísað frá dómi.

Það var og er mat Eimskips að ekkert tilefni hafi verið til málsóknar Alcoa, enda eru skilyrði skaðabótaskyldu ekki uppfyllt. Þá er ætlað tjón Alcoa engum haldbærum gögnum stutt.

Nánari upplýsingar veitir Harpa Hödd Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs, sími: 825 7379, netfang harpa@eimskip.com.


GlobeNewswire

Recommended Reading