Afkoma Norðurslóðar 4 á fyrri árshelmingi 2026


Stjórn Norðurslóðar 4 ehf. hefur samþykkt árshlutareikning vegna fyrri árshelmings 2026.

  • Leigutekjur á fyrri árshelmingi 2026 voru 123 millj. kr. (2025: 119 millj. kr.).
  • Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu (NOI) nam 92 millj. kr. (2025: 47 millj.kr.). Rekstrarhagnaður jókst frá fyrra ári, sem skýrist einkum af því að umfangsmiklum viðhaldsverkefnum er að ljúka.
  • Matslækkun á fjárfestingareigna var 68 millj. kr. (2025: 31 millj. kr. matshækkun).
  • Tap var á fyrri árshelmingi 2026 að fjárhæð 76 millj. kr. (2025: 5 millj. kr. tap).
  • Virði fjárfestingareigna var 2.495 millj. kr. þann 30.6.2026 (31.12.2025: 2.451 millj. kr.).
  • Eiginfjárhlutfall félagsins þann 30.6.2026 var 4,8% samanborið við 7,9% í árslok 2025.

Upplýsingar um afkomu samstæðu Reita fasteignafélags hf. má finna á www.reitir.is/fjarfestar. 

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða í netfanginu einar@reitir.is.

Viðhengi



Attachments

Norðurslóð 4 ehf. árshlutareikningur 30.06.2026
GlobeNewswire