Í viku 41 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 419.752 eigin hluti að kaupverði 17.785.634 kr. eins og nánar er greint frá hér:
| Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr) |
| 5.10.2026 | 15:29:37 | 19.752 | 41,80 | 825.634 |
| 7.10.2026 | 14:35:53 | 200.000 | 42,40 | 8.480.000 |
| 8.10.2026 | 11:38:17 | 200.000 | 42,40 | 8.480.000 |
| 419.752 | 17.785.634 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 05.05.2026.
Sjóvá átti 8.095.798 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 8.515.550 eigin hluti eða sem nemur 0,73% af útgefnum hlutum í félaginu.
Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 14.000.000 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 1,21% af útgefnu hlutafé félagsins. Heildarkaupverð endurkaupanna verður þó ekki hærra en 500 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að endurkaupum samkvæmt áætluninni ljúki í síðasta lagi 12. september 2027 eða fyrr ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veitir:
Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is