Nova Klúbburinn hf. - Niðurstaða í endurkaupum á eigin bréfum með öfugu tilboðsfyrirkomulagi


Gild tilboð bárust fyrir 159.526.476 hluti á meðalverðinu 3,2578. Með vísan í fyrri tilkynningu tekur Nova klúbburinn hf. tilboðum fyrir allt að 400.000.000 ISK og kaupir því 122.699.387 hluti, á hæsta samþykkta verði skv. hollenskri aðferð á genginu 3,26. Þar sem tilboð bárust umfram það magn sem ákveðið var að kaupa var tilboðum tekið hlutfallslega (pro rata). Uppgjörsdagur samþykktra tilboða er fimmtudagurinn 5. nóvember næstkomandi.

Endurkaupin eru í samræmi við viðeigandi lög og reglugerðir, þ.m.t. lög nr. 2/1995 um hlutafélög, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR) og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052 sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir, sem hafa lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum.

Eftir framangreind kaup á eigin hlutum á Nova klúbburinn hf. 142.457.744 eigin hluti eða sem samsvarar 4,13% af eigin hlutafé.


GlobeNewswire

Recommended Reading